Eldri sýningar

Ása G. Wright - frá Íslandi til Trinidad

  • 1.12.2009 - 30.5.2010, Þjóðminjasafnið á Suðurgötu

Á sýningunni getur að líta hluta þeirra gripa sem Ása Guðmundsdóttir Wright gaf safninu á 7. áratug síðustu aldar. Margir gripanna hafa ekki verið sýndir áður.

Sýningin er sett upp samhliða útkomu nýrrar ævisögu Ásu en Inga Dóra Björnsdóttir mannfræðingur hefur ritað bókina Kona þriggja eyja um ævi Ásu og kom hún út hjá Forlaginu nýlega.

Áslaug Guðmundsdóttir, eða Ása G. Wright, fæddist að Laugardælum í Ölfusi 12. apríl 1892. Hún lést í Port of Spain á eynni Trinidad í Karíbahafinu 6. febrúar 1971. Líf hennar var sannkallað ævintýri frá því hún var ung læknisdóttir á Íslandi þar til hún á efri árum rak gistiheimili í náttúruparadís á hitabeltiseyju. Persónuleiki Ásu var stór í sniðum, hún lét hendur standa fram úr ermum og er hverjum þeim eftirminnileg sem henni kynntust. Hún var af fyrirmönnum komin og var ákaflega stolt af uppruna sínum og vildi halda minningu ættarinnar á lofti.

Ása var velgjörðarmaður Þjóðminjasafns Íslands og gaf safninu hluta búslóðar sinnar ásamt veglegri fjárupphæð. Árið 1968 var stofnaður minningarsjóður Ásu Guðmundsdóttur Wright. Sjóðurinn er í vörslu Þjóðminjasafns Íslands og er ætlað að standa straum af heimsóknum erlendra fræðimanna til landsins, til að flytja fyrirlestra á vegum safnsins um þætti í norænni menningu. Fyrirlestrar sjóðsins hafa verið gefnir út í sérstakri ritröð. Nýjasta ritið, sem er númer þrettán í ritröðinni, ber heitið Islands fine sølv en ritin eru fáanleg í safnbúð Þjóðminjasafnsins.

Sérstök vefsýning um Ásu G. Wright var sett upp og má sjá hana hér.