Eldri sýningar

Kveisustrengurinn

  • 7.6.2018 - 2.6.2019, 10:00 - 17:00, Safnahúsið við Hverfisgötu

Í handritasafni Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns er að finna 400 ára gamalt dökkt og máð skinnblað með safnmarkið Lbs fragm. 14, sem á eru ritaðar særingar gegn kveisu og gigt. Skinnblaðið er nú til sýnis í Safnahúsinu.

„Ég særi þig gigt og kveisa burt að flýja, ég mana þig, ég deyfi þig, ég drep þig kveisa.“ 

Þetta er meðal þess sem ritað er á skinnblaðið sem er frá því um aldamótin 1600. Blaðið er 58,4 x 10,8 sm að stærð og er texti á báðum hliðum þess, bæði á latínu og íslensku. Efni textans er særingar gegn kveisu og gigt og á strengnum er að finna ritningatexta úr latínu og særingar á íslensku inn á milli. Særingar hafa tíðkast frá árdögum mannkyns í öllum trúarbrögðum, meðal annars til lækninga, enda aðgengi að heilbrigðisþjónustu langt frá því sem við þekkjum í dag. Eftir siðaskipti tóku veraldleg yfirvöld og kirkjan að líta mjög neikvæðum augum á þessar tilraunir til lækninga og beittu sér gegn þeim. Skinnblöð af þessu tagi voru langflest eyðilögð í galdraofsóknunum og því er kveisustrengurinn sem nú er til sýnis einstakur minnisvarði um tilraunir fólks til lækninga með aðferðum sem hið opinbera vann mjög á móti.  

Sýningin er sett er upp í tilefni af 200 ára afmæli Landsbókasafnsins.