Eldri sýningar

Til gagns og til fegurðar

Sjálfsmyndir í ljósmyndum og klæðnaði 1860 til 1960

  • 8.2.2008 - 4.5.2008, Myndasalur - Þjóðminjasafnið Suðurgötu

Sýningin Til gagns og til fegurðar byggir á rannsóknum Æsu Sigurjónsdóttur listfræðings á útliti og klæðaburði Íslendinga í ljósmyndum frá 1860 til 1960.

Æsa sem er sýningarhöfundur kynnir rannsóknir sínar jafnframt í samnefndri bók sem kom út við opnun sýningarinnar. Flestir geta verið sammála um að ljósmyndir geri tímann nánast áþreifanlegan. Ljósmyndir hafa þó ekki einungis heimildargildi um tökutímann og það sem var, heldur búa þær yfir fagurfræðilegum eiginleikum og ríkulegu táknmáli. Þær móta hugmyndir okkar um hið liðna, og sýna afstöðu okkar til tímans og sögunnar, jafnframt því að vera áhrifamikill miðill til ímyndarsköpunar.

Tíminn hefur mikil áhrif á það hvernig við horfum á ljósmyndir, upplifum þær og skiljum, þær vekja spurningar um samband Íslendinga við táknheim sinn fyrr og nú. Hvernig er hægt að nota ljósmyndir til að setja saman mynd af fortíðinni og jafnvel nálgast hana á nýjan hátt? Geta myndir hjálpað okkur við að gera söguna sýnilega?

Á sýningunni er bent á hvernig Íslendingar hafa notað ljósmyndir, þjóðbúninga og tísku til að búa til mynd af sér. Ljósmyndirnar á sýningunni eru vísbending um hvernig Íslendingar litu út og sýna hvernig þá langaði til að vera.